Bílasmíði
Stór hluti hópferðabíla Guðmundar Tyrfingssonar ehf eru hannaðir og smíðaðir hér á landi af starfsmönnum dótturfyrirtækisins Tyrfingssonar hf.
Fyrsti bíllinn var smíðaður árið 1969 og síðan þá hafa tugir nýrra bíla verið yfirbyggðir frá grunni en auk þess hafa fjölmargir minni bílar (20 farþega eða færri) verið innréttaðir sem hópferðabílar.
Smíðin tekur um 8 mánuði fyrir tvo til þrjá menn en að sjálfsögðu er það misjafnt eftir stærð bifreiðar og útbúnaði. Í nær öllum tilfellum er pöntuð ný grind af Mercedes Benz gerð og kemur hún með mótor, stýri, drif- og hjólabúnaði.
Bílarnir eru byggðir fyrir íslenskar aðstæður og eru hærri en bílar sem eru framleiddir erlendis en erlendar yfirbyggingaverksmiðjur útbúa sína framleiðslu nær eingöngu fyrir hraðbrautir en ekki fyrir fjölnota aðstæður eins og eru á Íslandi.
Við hönnun og smíði bílanna er ávallt lögð áhersla á að byggja yfir nýja bíla með fullkomnasta öryggisbúnaði sem völ er á hverju sinni og vélum sem uppfylla ströngustu mengunarstaðla.